Lífeyrisframtíðin

Val á lífeyris- og séreignarsjóðum

Á Íslandi eru nítján lífeyrissjóðir sem taka við nýjum sjóðsfélögum. Hvar er þinni eign best borgið?

Um 55% starfandi fólks hefur val um í hvaða lífeyrissjóð viðkomandi greiðir sinn skyldusparnað en á Íslandi eru nítján lífeyrissjóðir sem taka við nýjum félögum. Vissir þú það?

Vissir þú að þessir sjóðir sjá um að ávaxta 15,5% af launum þínum? Það er engin smá upphæð yfir lengri tíma.

Við val á lífeyrissjóði eru margir þættir sem þarf að huga að. Þessir nítján lífeyrissjóður bjóða upp á mismunandi leiðir og lausnir þó að nokkrir þeirra séu keimlíkir.

Meðal þess sem þarf að skoða eru markmið viðkomandi viðskiptavinar um:

  • Starfslok – hvert er markmiðið um aldur við starfslok?
  • Samsetning sparnaðar – réttindarávinnsla og séreign og/eða blöndu af hvorru tveggja?

Því yngri sem þú ert þegar þessi ráðgjöf er þegin því nær kemstu að markmiðum þínum. Það er aldrei of seint að fá ráðgjöf um val á lífeyrissjóðum en það getur margborgað sig að spá í séreigninni snemma á lífsleiðinni.

Meðmæli

„Það er stutt í miklar breytingar og spennandi tíma hjá okkur hjónum, þar sem við erum að fara að draga okkur út af vinnumarkaðinum. Okkur var ráðlagt að bóka tíma hjá Lífeyrisframtíðinni og tala við Sigurð um okkar málefni. Það er í engu ofaukið að segja, að yfirgripsmikil þekking Sigurður, á réttindum til lífeyrisgreiðslna úr þeim sjóðum sem við höfum greitt í, gerði okkur auðvelt með að átta okkur á flóknum reglum og útreikningum, til að sýna okkur hvað framtíðin ber í skauti sér. Eftir okkar trúnaðarsamtöl í þægilegu andrúmslofti á skrifstofu Sigurðar, mælum við heilshugar með, að hver sá sem er í minnsta vafa um, hvað tekur við þegar starfsævi lýkur, ætti að panta tíma hjá Sigurði.“

– Guðrún Richardsdóttir og Gunnar Brynjólfsson

Þjónusta okkar

© 2026, Q4 ehf kt. 610621-0150
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: Facebook