Það vefst fyrir mörgum, þrátt fyrir áform um að hefja töku lífeyris, að sækja um greiðslu lífeyris hjá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun. Enn aðrir vilja að óháður aðili aðstoði við þetta ferli með hagsmuni viðkomandi númer eitt að leiðarljósi.

Það er mikilvægt að tekjuáætlun sé sem réttust svo að ekki komi til hárra endurgreiðslna eða bakkrafna frá Tryggingastofnun sem fólk getur verið misvel fjárhagslega undirbúið fyrir.

Í tekjuáætlun þarf meðal annars að leggja mat á frádráttarbærar, tekjumyndandi eignir sem hafa skerðingaráhrif á greiðslur frá Tryggingastofnun.

Þetta kerfi getur virkað flókið fyrir suma og því getur óháður ráðgjafi eins og Sigurður komið inn í svona ferli með svör við nánast öllum spurningum og gert þetta ferli ánægjulegt, jafnvel spennandi. Helsta markmiðið í svona áætlanagerð er að mánaðarlegar ráðstöfunartekjur verði sem hæstar, að teknu tilliti til allra þátta.

Meðmæli

„Víðtæk þekking Sigurðar á málaflokknum reyndist okkur vel og mikil hjálp við annars flókin mál, bæði hvað varðaði lífeyristöku og ekki síður sparnað okkar. Vinnubrögðin öll báru vott um góða þekkingu á málefninu og voru traust, fumlaus og nærgætin.Við hvetjum fólk sem er á þessum tímamótum eindregið til að leita ráðgjafar og aðstoðar við sín mál. Mælum við hiklaust með Sigurði Sigurbjörnssyni til þeirra verka og fullyrðum að yfirgripsmikil þekking hans hafi sparað okkur mikinn tíma og fyrirhöfn og skili sér margfalt til baka með mun betri ráðstöfunartekjum en ella.“

– Sveinn Ingvason og Guðlaug Jónsdóttir