„Það er ómetanlegt að fá faglega og hlutlausa ráðgjöf þegar kemur að lífeyrismálum. Góður undirbúningur skiptir máli fyrir töku lífeyris og það var einmitt það sem ég fékk hér: skýra sýn, ró og traust á að ég væri að taka réttar ákvarðanir. Að fá allt útskýrt á mannamáli og sjá hvernig mismunandi valkostir hafa áhrif á framtíðartekjur var mikill léttir. Ég finn raunverulega fyrir öryggi og friði nú þegar ég hef tekið þetta skref inn í seinni hálfleikinn. Ég mæli heilshugar með þessari ráðgjöf fyrir alla sem vilja taka lífeyrinn með skynsemi og góðum undirbúningi.“
- Sigmar A. Scheving