Sigurður er ekki bara eigandi Lífeyrisframtíðarinnar heldur einnig aðalráðgjafi fyrirtækisins. Sigurður byrjaði að starfa við lífeyrisráðgjöf árið 1998 í gegnum fyrirtækið Fjárfestingar & ráðgjöf.

Á þeim árum mótaði hann, í félagi við aðra ráðgjafa, aðferðarfræði sem kallast Þrjú þrep til fjárhagslegs öryggis. Þá aðferð hefur Sigurður þróað áfram allar götur síðan og hefur hún gefist afar vel, nánast sama í hvaða stöðu fólk er þegar það leitar til hans. Þrátt fyrir lagabreytingar á bæði lögum um lífeyrissjóði og almannatryggingar hefur þessi aðferðafræði eingöngu styrkst og hefur reynst viðskiptavinum gríðarlega vel í gengum áratugina eins um umsagnir ánægðra viðskiptavina ber með sér.

Smelltu hér og kynntu þér aðferðarfræðina Þrjú þrep til fjárhagslegs öryggis.

Sigurður hefur starfað nánast sleitulaust að lífeyrisráðgjöf síðan árið 1998. Það er reynsla Sigurðar að þeir sem leita að og þiggja aðstoð í lífeyrismálum og fylgja tilmælum óháðra ráðgjafa eru oft með meira á milli handanna við starfslok.

Sigurður hefur meðal annars starfað fyrir Fjárvang, sem síðar varð Frjálsi fjárfestingabankinn, Landsbréf, Landsbankann, VÍS og LÍFÍS og síðar við lífeyrisráðgjöf hjá Tryggingum & ráðgjöf.