

Um 55% starfandi fólks hefur val um í hvaða lífeyrissjóð viðkomandi greiðir sinn skyldusparnað en á Íslandi eru nítján lífeyrissjóðir sem taka við nýjum félögum. Vissir þú það?
Vissir þú að þessir sjóðir sjá um að ávaxta 15,5% af launum þínum? Það er engin smá upphæð yfir lengri tíma.
Við val á lífeyrissjóði eru margir þættir sem þarf að huga að. Þessir nítján lífeyrissjóður bjóða upp á mismunandi leiðir og lausnir þó að nokkrir þeirra séu keimlíkir.
Meðal þess sem þarf að skoða eru markmið viðkomandi viðskiptavinar um:
- Starfslok – hvert er markmiðið um aldur við starfslok?
- Samsetning sparnaðar – réttindarávinnsla og séreign og/eða blöndu af hvorru tveggja?
Því yngri sem þú ert þegar þessi ráðgjöf er þegin því nær kemstu að markmiðum þínum. Það er aldrei of seint að fá ráðgjöf um val á lífeyrissjóðum en það getur margborgað sig að spá í séreigninni snemma á lífsleiðinni.